Bastarður Lávarður

Bastarðurinn heldur með Breiðablik og hefur atvinnu að keyra, en hefur engan áhuga á bílum.
Bastarðurinn heldur með Utah Jazz í NBA og er frekar bara ánægður með það.
Bastarðurinn er nýbyrjaður að spila golf sér til mikillar gremju.
Bastarðurinn heldur með ónefndu liði á Englandi sem má muna fífil sinn fegri.
Honum finnst bjór góður... 

Bastarðurinn spilar á gítar, bassa, hljómborð og trommur.
Bastarðurinn er með öllu laglaus, en laglegur.
Bastarðurinn hlustar á klassíska tónlist og dauðarokk.
Bastarðurinn er með mikla klippiþörf en ekki svo mikla sýniþörf.
Honum finnst bjór góður...

Bastarðurinn er nýbúinn að tanna sig í drasl og drusla sér til tannlæknis

Honum finnst bjór góður... 

Bastarðurinn finnst asnalegt að tala um sig í 3ju persónu.
Bastarðurinn er hættur að tala um sig í 3ju persónu.

Mér finnst bjór góður... 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Vigfús Þór Rafnsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband